OR er með grænan fjármögnunarramma þar sem öll fjármögnun hjá OR fellur undir, hvort sem það eru lán, skuldabréf eða önnur fjármögnun.
Carbfix tækninni er beitt í Hellisheiðarvirkjun, annarri af tveimur jarðvarmavirkjunum OR sem mótvægisaðgerð við loftslagsbreytingum. Undirbúningur að tilraunahreinsistöð við Nesjavallavirkjun hefur staðið yfir árið 2022 og mun taka til starfa árið 2023. Þetta eru bein viðbrögð við loftslagsvandanum og hluti af mikilvægu framlagi OR samstæðunnar á þeirri vegferð að draga úr beinni losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi. Að auki hefur samstæðan fjármagnað fjölmörg græn og loftslagsvæn verkefni, þar á meðal verkefni vegna aðlögunar að loftslagsbreytinum, með útgáfu grænna skuldabréfa ásamt grænna lána. Rekstur orku- og veitufyrirtækis á sjálfbæran hátt er grundvöllur langtímastefnu samstæðunnar. Græn fjármögnun er lykilþáttur í stefnunni og veitir fjárfestum tækifæri til að styðja við orkuskipti í átt að lágkolefnis- og loftslagsþolnu samfélagi í framtíðinni.
Árið 2022 fjármagnaði OR samstæðan fjölmörg ný græn og loftslagsvæn verkefni fyrir um 10,7 milljarða kr. Þessi verkefni voru m.a. orkuframleiðsla úr endurnýjanlegum orkugjöfum, svo sem raforkuframleiðsla og stækkun hitaveitna, sjálfvirkur mælalestur veitukerfa, bindingu koltvísýrings í berggrunn, verkefni til að efla aðlögun og viðnámsþrótt veitukerfa vegna loftslagsbreytinga og fleira. Þessi fjármögnun nemur 19% af veltu samstæðunnar. Þverfaglegt teymi innan OR velur verkefnin og þau eru yfirfarin af utanaðkomandi aðila.