Bein orkunotkun á hverja einingu í rekstri, t.d. stærð húsnæðis, stöðugildi o.s.frv. er stundum kölluð orkukræfni.

Eigin notkun á rafmagni er einkum vegna vinnslu á heitu vatni, dælingar í fráveitu, heitu og köldu vatni og reksturs fasteigna. Eigin rafmagnsnotkun miðað við stærð húsnæðis samstæðu OR hefur almennt aukist nokkuð frá 2016 og heitavatnsnotkun sveiflast nokkuð.

Rafmagns- og heitavatnsnotkun samstæðu OR miðað við stærð húsnæðis

Notkun jarðefnaeldsneytis á starfsmanneskju í samstæðu OR hefur minnkað miðað við árið 2016 en notkun metans hefur aukist.

Til að upplýsingarnar séu sambærilegar er frumorkunotkunin sett fram í megajoule (MJ).

Eldsneytisnotkun á starfsmanneskju hjá samstæðu OR