Í árlegum vinnustaðargreiningum er starfsfólk spurt hvort það hafi orðið fyrir einelti, kynferðislegu áreiti eða kynbundnu. Tilfellum hefur almennt fækkað ár frá ári og stefna fyrirtækisins er einfaldlega að slíkt sé ekki liðið.
Á árinu 2021 fór hlutfall þeirra sem sögðust hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað síðustu 12 mánuði í fyrsta skipti niður í 0. Árið 2022 var niðurstaða mælingarinnar sú sama. Þótt hlutfallstalan sé 0 þá sögðust tveir svarendur hafa orðið yfir slíkri áreitni. Þátttaka í vinnustaðargreiningunni meðal starfsfólks var 92%.
Bætt var við spurningu í könnuninni meðal starfsfólks á árinu 2022. Hún var þessi: „Hefur þú orðið fyrir einhvers konar mismunun vegna t.a.m. varðandi kynferði, aldur, kynhneigð, trúarbrögð, skoðanir, þjóðerni, kynþátt, litarhátt, efnahag, ætterni eða stöðu að öðru leiti?“ Markmið hennar er að stuðla að inngildandi menningu og tækifæri til framfara á því sviði. 1% svaraði játandi, 93% neitandi en 6% svarenda svöruðu veit ekki/vil ekki svara. Síðast taldi hópurinn er óþægilega stór og þar sem skýringu vantar verður haldið áfram með spurninguna í vinnustaðargreiningum OR.
Hlutfall starfsfólks sem segist hafa orðið fyrir einelti eða kynferðislegri áreitni
Jafnrétti og fjölbreytileiki á vinnustaðnum
Á árinu 2022 var haldið áfram með rafræn námskeið í átta þáttum um jafnrétti og fjölbreytileika á vinnustaðnum. Námskeiðin eru í umsjá Sóleyjar Tómasdóttur hjá Just Consulting. Námskeiðin eru hluti nýliðaþjálfun fyrirtækjanna í samstæðunni og hefur því allt nýtt starfsfólk lokið þeim. Markmiðið er að skapa sameiginlega þekkingu til að stuðla að vinnustaðarmenningu þar sem öllu starfsfólki líður vel. Samhliða námskeiðunum voru haldin svokölluð Jafnréttis-trúnó, rafrænir fundir þar sem starfsfólk skiptist á reynslu og skoðunum á ýmsum hliðum vinnustaðarmenningar.
Iðnir og tækni
Á árinu 2022 var einnig áfram unnið að verkefninu Iðnir og tækni með krökkum af öllum kynjum úr Árbæjarskóla. Ungmenni sækja í því valáfanga sem hefur það markmið að vekja áhuga nemenda á iðn- og tæknistörfum og kynna þeim þau fjölbreyttu störf og starfstækifæri sem iðn- og tækninám hefur upp á að bjóða. Námið er fjölbreytt og byggir á fræðslu, vettvangsferðum og verklegum æfingum. Öll fyrirtæki samstæðunnar taka þátt í verkefninu og er starfsfólkið í kennara- og undirbúningshópurinn um 40 talsins.