OR er kynjaskiptur vinnustaður og unnið er að því að auka fjölbreytni kynja innan starfaflokka. Í Ársskýrslu OR er nú í fyrsta sinn að sjá þríþætta kynjaskiptingu; konur, karla og kynsegið/annað. Á meðal stjórnenda hefur jafnvægi ríkt milli karla og kvenna frá árinu 2015. OR hefur ekki tölur yfir kynjaskiptingu meðal verktaka.
Kynjahlutfall eftir starfaflokkum
Samkvæmt úttekt Ernst & Young fyrir samtökin Konur í orkumálum sem gefin var út í desember 2021 eru áhrif kvenna innan orkugeirans mest hjá OR samstæðunni og hefur það verið niðurstaðan í öllum þremur mælingum samtakanna. Þær eru gerðar annað hvort ár og næsta úttekt væntanleg árið 2023.