Heimsmarkmið

Sameinuðu þjóðanna

Í samræmi við leiðbeiningar Sameinuðu þjóðanna og íslenskra stjórnvalda hefur OR forgangsraðað Heimsmarkmiðunum og leggur sérstaka áherslu á fimm þeirra í starfsemi samstæðunnar.

Markmiðunum var raðað þannig að haldnar voru fjórar vinnustofur; með stjórnendum innan samstæðunnar, tvær með starfsfólki og ein með ytri hagsmunaaðilum. Í þeirri síðasttöldu tóku meðal annarra þátt fulltrúar frá opinberum stofnunum, stórum vöru- og þjónustubirgjum, stórum viðskiptavinum, verktökum og verkalýðsfélagi.

Á vinnustofunum röðuðu þátttakendur Heimsmarkmiðunum hvorttveggja eftir því hvar OR gæti haft jákvæð áhrif á framgang markmiðanna og hvar hætta kynni að vera á að starfsemin hindraði framganginn. Stjórn OR ákvað að stefna fyrirtækisins um samfélagslega ábyrgð tæki mið af niðurstöðu vinnustofanna og leggur sérstaka áherslu á fimm.

Reglubundin rýni stjórnar OR á öllum sameiginlegum stefnuskjölum samstæðunnar tekur mið af þessu.

Heimsmarkmið OR 2020.jpg

5 Jafnrétti kynjanna

Jafnrétti kynjanna er mannréttindamál sem miðar að því að meta einstaklinga að eigin verðleikum og er grundvöllur sjálfbærs reksturs.

6 Hreint vatn og hreinlætisaðstaða

Öflun og dreifing vatns til neyslu og brunavarna og rekstur fráveitu eru hluti af kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur.

7 Sjálfbær orka

Sjálfbær vinnsla og dreifing raf- og varmaorku eru hluti af kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur.

12 Ábyrg neysla og framleiðsla

Ábyrg innkaup og minnkun sóunar ráða miklu um það hvernig Orkuveita Reykjavíkur rækir sína kjarnastarfsemi.

13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Markvissar aðgerðir í loftslagsmálum eru nauðsynlegur þáttur í starfsemi allra fyrirtækja.

Áherslur á Heimsmarkmið

Helstu áherslur og áherslubreytingar í starfi samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur birtast í stefnuverkefnum. Stefnuverkefni þróa fyrirtækin innan samstæðunnar áfram til framtíðar og eru hreyfiafl breytinga í rekstri. Þau geta náð til fleiri en eins fyrirtækis innan samstæðunnar og haldið er sérstaklega utan um hvort þessi verkefni styðji við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, eitt eða fleiri.

Á árinu 2022 var unnið að fimm stefnuverkefnum tengdum Heimsmarkmiði 7, fjögur tengdust markmiði 3, þrjú tengdust Heimamarkmiðum 5, 12 og13 og tvö tengdust markmiði 6 og 9.

Áherslur dótturfyrirtækja

Stjórnir allra fyrirtækjanna innan samstæðu OR hafa tekið afstöðu til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna með tilliti til starfssviðs hvers fyrirtækis og undirmarkmiða hvers Heimsmarkmiðs.

Orka náttúrunnar

  • 5 Jafnrétti kynjanna
  • 7 Sjálfbær orka
  • 9 Nýsköpun og uppbygging
  • 11 Sjálfbærar borgir og samfélög
  • 12 Ábyrg neysla og framleiðsla
  • 13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Carbfix

  • 3 Heilsa og vellíðan
  • 5 Jafnrétti kynjanna
  • 9 Nýsköpun og uppbygging
  • 13 Aðgerðir í loftslagsmálum
  • 17 Samvinna um markmiðin

Veitur

  • 5 Jafnrétti kynjanna
  • 6 Hreint vatn og salernisaðstaða
  • 7 Sjálfbær orka
  • 9 Nýsköpun og uppbygging
  • 11 Sjálfbærar borgir og samfélög
  • 12 Ábyrg neysla og framleiðsla
  • 13 Aðgerðir í loftslagsmálum
  • 14 Líf í vatni

Ljósleiðarinn

  • 5 Jafnrétti kynjanna
  • 9 Nýsköpun og uppbygging
  • 11 Sjálfbærar borgir og samfélög
  • 13 Aðgerðir í loftslagsmálum

Markmið 1 | Engin fátækt

  • 1.5

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 1.5, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði staða fátækra og fólks í viðkvæmri stöðu styrkt með fyrirbyggjandi aðgerðum til að bregðast við alvarlegum atburðum af völdum loftslagsbreytinga, efnahagslegum eða félagslegum áföllum, umhverfisskaða eða hamförum.

  • 1.a

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 1.a, sem er: Tryggð verði margvísleg úrræði fyrir þróunarlönd, einkum þau verst settu, þar á meðal með aukinni þróunarsamvinnu, til að þeim standi til boða fullnægjandi og áreiðanleg aðstoð og hrint verði í framkvæmd áætlunum sem miða að því að útrýma fátækt í allri sinni mynd.

Markmið 3 | Heilsa og vellíðan

  • 3.4

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 3.4, sem er: Eigi síðar en árið 2030 hafi ótímabærum dauðsföllum af völdum annarra sjúkdóma en smitsjúkdóma verið fækkað um þriðjung með fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð og stuðlað að geðheilbrigði og vellíðan. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 4 | Menntun fyrir alla

  • 4.1

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 4.1, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði tryggt að allar stúlkur og drengir ljúki góðri grunnskólamenntun á jafnréttisgrundvelli án endurgjalds til að öðlast viðeigandi og gagnlega 125 menntun. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

    • 4.1.1
      Hlutfall barna og ungmenna a) í 2. og 3. bekk, b) við lok grunnskóla, c) við lok framhaldsskóla sem náð hefur a.m.k. lágmarksfærni í i. lestri og ii. stærðfræði, eftir kyni.
  • 4.4

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 4.4, sem er: Eigi síðar en árið 2030 hafi ungmennum og fullorðnum með hagnýta kunnáttu fjölgað umtalsvert, þar á meðal á sviði tækni- og starfsmenntunar, til þess að geta gegnt viðeigandi störfum, fengið mannsæmandi vinnu og stundað frumkvöðlastarfsemi. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 5 | Jafnrétti kynjanna

Markmið 7 | Sjálfbær orka

Markmið 8 | Góð atvinna og hagvöxtur

  • 8.5

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 8.5, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði full vinna og mannsæmandi störf í boði fyrir allar konur og karla, þar á meðal ungt fólk og fatlað fólk, og sömu laun greidd fyrir jafnverðmæt störf. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

  • 8.8

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 8.8, sem er: Réttindi á vinnumarkaði verði vernduð og stuðlað að öruggu og tryggu vinnuumhverfi fyrir allt launafólk, meðal annars farandverkafólk, einkum konur í þeim hópi og þá sem eru í óöruggu starfi.

    • 8.8.2
      Að hve miklu leyti nýtur launafólk réttinda á innlendum vettvangi (félagafrelsis og kjaraviðræðna) byggt á gögnum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) og innlendri löggjöf, eftir kyni og farandstöðu.

Markmið 9 | Nýsköpun og uppbygging

Markmið 10 | Aukinn jöfnuður

  • 10.1

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 10.1, sem er: Eigi síðar en árið 2030 hafi varanleg tekjuaukning náð fram að ganga í áföngum fyrir 40% þess mannfjölda sem tekjulægstur er og verði hlutfallslega hærri en meðallaunahækkanir á landsvísu.

    • 10.1.1
      Vaxtarhraði í útgjöldum heimila eða tekjum á mann meðal lægstu 40 hundraðshluta íbúanna og hjá öllum íbúum.
  • 10.2

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 10.2, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði öllum gert kleift að taka þátt í félagslífi og hafa afskipti af efnahagsmálum og stjórnmálum, án tillits til aldurs, kyns, fötlunar, kynþáttar, þjóðernis, uppruna, trúarbragða, efnahags eða annarrar stöðu. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 11 | Sjálfbærar borgir og samfélög

  • 11.6

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 11.6, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum, meðal annars með því að bæta loftgæði og meðhöndlun úrgangs. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

  • 11.a

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 11.a, sem er: Stutt verði við jákvæð efnahags-, félags- og umhverfisleg tengsl milli þéttbýlis, þéttbýlla svæða í borgarjaðri og dreifbýlissvæða með því að styrkja áætlanir um byggðaþróun á landsvísu og innan svæða. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 12 | Ábyrg neysla

  • 12.6

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 12.6, sem er: Fyrirtæki, einkum stór og alþjóðleg fyrirtæki, verði hvött til þess að innleiða sjálfbæra þróun í starfsemi sína og veita upplýsingar um sjálfbærni í skýrslum sem gefnar eru út á þeirra vegum.

  • 12.7

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 12.7, sem er: Stuðlað verði að sjálfbæru verklagi við opinber innkaup í samræmi við innlenda stefnu og forgangsröðun. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 13 | Aðgerðir í loftslagsmálum

Markmið 14 | Líf í vatni

  • 14.1

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 14.1, sem er: Eigi síðar en árið 2025 verði verulega dregið úr og komið í veg fyrir hvers kyns mengun sjávar, einkum frá starfsemi á landi, þ.m.t. rusli í sjó og mengun af völdum næringarefna. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 15 | Líf á landi

  • 15.1

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 15.1, sem er: Eigi síðar en árið 2020 verði vistkerfi á landi og í ferskvatni vernduð og stuðlað að sjálfbærri nýtingu þeirra og endurheimt, einkum skóga, votlendis, fjalllendis og þurrkasvæða, í samræmi við skuldbindingar samkvæmt alþjóðasamningum. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

  • 15.3

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 15.3, sem er: Eigi síðar en árið 2030 verði barist gegn eyðimerkurmyndun, leitast við að endurheimta hnignandi land og jarðveg, þ.m.t. land sem er raskað af eyðimerkurmyndun, þurrkum og flóðum, og unnið að því að koma á jafnvægi milli hnignunar og endurheimtar lands í heiminum. Þetta er á meðal forgangsmarkmiða ríkisstjórnar Íslands.

Markmið 17 | Alþjóðleg samvinna

  • 17.6

    OR leitast við að uppfylla undirmarkmið 17.6, sem er: Eflt verði samstarf milli svæða í norðri og suðri, innan suðursvæða ásamt þríhliða svæðisbundnu og alþjóðlegu samstarfi um vísindi, tækni og nýsköpun og aðgengi að þessum sviðum auðveldað. Enn fremur verði þekkingu miðlað í meira mæli á jafnræðisgrundvelli, meðal annars með því að samræma betur fyrirliggjandi kerfi, einkum á vegum Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra skipulagseininga sem er ætlað að stuðla að tækniþróun.