Innan samstæðu OR eru níu félög sem lúta sérstakri stjórn. Stjórnarfólk móðurfélagsins skal m.a. hafa þekkingu og reynslu sem hæfir þeirri ábyrgð sem stjórnarsetunni fylgir. Samsvarandi kröfur eru gerðar um setu í stjórn dótturfélaga.
Tvær nefndir starfa í umboði stjórnar OR, starfskjaranefnd og endurskoðunarnefnd. Formaður starfskjaranefndar er kona. Endurskoðunarnefnd er sameiginleg með samstæðu Reykjavíkurborgar og tilnefnir stjórn OR fulltrúa í nefndina. Sá fulltrúi er kona.
Stjórnarsæti innan samstæðunnar eru alls 45 en sama fólk skipar stjórn OR og OR Eigna, einnig ON og ON Power og loks Eignarhaldsfélagsins Carbfix og Carbfix hf. 19 af sætunum 45 eru skipuð konum og 26 körlum. Konur gegna formennsku í sex af stjórnunum níu; stjórn Veitna, stjórn Orku náttúrunnar og þar með ON Power, stjórnum Carbfix félaganna og stjórnarformaður Ljósleiðarans er kona. Tveir áheyrnarfulltrúar eru í stjórn OR; hvor tveggja kona.