S3 Kaupaukar

Styður heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna
Jafnrétti kynjanna Aukinn jöfnuður

Í engum ráðningarsamningum stjórnenda eða annars starfsfólks Orkuveitu Reykjavíkur er að finna beina tengingu á milli launa og tiltekinna mælikvarða í rekstrinum, hvorki fjárhagslegra né annarra. OR telur að slík ákvæði geti verðlaunað árangur til skamms tíma á kostnað þeirra langtímamarkmiða sem eðli starfseminnar kallar á að séu höfð að leiðarljósi.

Eigendastefna OR kveður á um að laun stjórnenda skuli standast samanburð við sambærileg störf, þó að teknu tilliti til þess að fyrirtækið er í eigu opinberra aðila. Launakjör stjórnenda og annars starfsliðs Orkuveitu Reykjavíkur skulu ekki vera leiðandi á vinnumarkaði.

Fjárhæð stjórnarlauna, launa forstjóra og framkvæmdastjóra innan samstæðu er tilgreind í ársreikningi OR og ársreikningum dótturfélaga.